Í verkum Tedda má finna streng
og tilfinningu sem nálgast það að vera
frumkraftur listarinnar eða frumþörfina sem
listin er manninum. Sum verkin eru eins og 5000 ára
gamlar leifar af fornri menningu. Það er eins
og að í efniviði listaverkanna megi finna
tíma, aldur og reynslu sem speglar aldur og reynslu
listamannsins sjálfs. Viðurinn er ekki tækur
til sköpunar fyrr en hann hefur safnað um sig nógu
mörgum árhringjum og ekki er verra ef hann hefur
einhverja sögu að segja, hvort sem hann hefur rekið
stefnulaust um heimshöfin eða legið sem bryggjustólpi
í Reykjavíkurhöfn um áratugaskeið.
Það má segja að í viðnum
og Tedda sjálfum mætast aldir og áratugir
af reynslu og ævi sem kalla síðan á
form og nýjan tilgang eða líf. Teddi nýtir
formskyn sitt og þekkingu úr prentiðninni
og finnur henni nýjan farveg í tré
eða málmi. Gömul brotin skipsskrúfa
úr strandi í Skerjafirðinum öðlast
nýtt líf sem koparskúlptúr í
listaverki, eins og kannski listin hefur kallað Tedda
sjálfan til sín eftir eitthvert strandið
þegar hann hafði velkst of lengi um heimshöfin.
Teddi er ævintýramaður af gamla skólanum
og efnið ber heimsmynd hans vitni. Í verkunum
eru ekki aðeins rekaviður og bryggjustólpar
heldur má einnig nefna purpurahjarta frá Chile,
mahogni og eik af ýmsum gerðum. Í nokkrum
verkum mætast járnviður frá afríku
og íslenskt líparít.
|

Það fór vel á með
forseta Íslands Ólafi R. Grímssyni og Tedda
á Sjöttu sýningu Tedda í Perlunni sem
var jafnframt 16. stóra sýning hans.
Teddi er listrænt ólíkindatól
og verkin endurspegja persónu Tedda sjálfs,
hann er kjaftfor og óhræddur og lætur
allt flakka. Hann virðist óbundinn af hugmyndafræði
eða stefnum og virðist ekki velta mikið fyrir
sér hvað má og hvað má ekki,
hann er óhræddur við að prófa
sig áfram. Hann bindur sig ekki við ákvenar
aðferðir heldur er hann síleitandi, í álverkunum
er hann til kominn lengra frá frumsköpuninni, þau
eru söguð með tölvustýrðum leysigeisla
eftir forskrift listamannsins. |
| 
|
Í verkum Tedda má finna fínleika
og næmni í formskyni í bland við
grófari og óheflaðra myndmál upp
í bráðfyndin uppátæki eins
og gómurinn sem var límdur á holan
marmarakassa frá sýningunni 2002. Tryggingafræðingur
hét verkið, kalt að utan, holt að innan.
Nafngiftirnar spanna líkt svið. Rússnesk
rót frá Síberíu hefur orðið
að verki sem heitir ,,Samviska", bogadregnar línur
í öðru verki kalla á heitið ,,Djúpsjávarfiskur"
á meðan hvassara form kallar á nafnið,
,,Aggresívur stjórnmálamaður".
En hvað sem því líður ættu
allir að finna eitthvað sem gleður augað.
Ef það dugar ekki ættu menn að loka
augunum og þreifa á forminu. Það
má snerta verkin.
Andri Snær Magnason
|
| Listi yfir verk
í opinberri eigu: |
| Mr.
Richard von Weizsäcker,
fyrrverandi forseti Þýskalands
Künstlerhaus í Cuxhaven
Slökkvistöðin í Boston
Seamans Mission í Boston
Reykjavíkurborg, Ráðhús Reykjavíkur
Slökkvistöð Reykjavíkur
Reykjavíkurhöfn
Brunamálastofnun ríkisins
Árbæjarlaug
Landsbanki Íslands
Seðlabanki Íslands
Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið
Visa Ísland
|
Nesjavallavirkjun
Samskip hf.
Eimskip hf.
Verkamannafélagið Dagsbrún
Blindrafélagið
Flugleiðir hf.
Ferðaskrifstofan Úrval Útsýn
Samhjálp
Sjúkrahús Reykjavíkur
Kvennaathvarfið
Sjúkrastofnunin Vogur
Barnastofa
Orkuveita Reykjavíkur |
| |
|