| |
Smellið á mynd til að sjá
kortið |
Teddi hefur flutt vinnustofu sína frá
horni Skúlagötu og Klapparstígs alla leið að
Arnarholti á Kjalarnesi. Vinnustofan var áður verkstæði
og hefur Teddi komið sér þar vel fyrir í um
200 fm húsnæði. Til að auðvelda fólki
að finna staðinn höfum við sett kort hér á
vefinn sem sýnir leiðina frá þjóðvegi
1 að Arnarholti. Beygt er af þjóðveginum við
afleggjarann að Brautarholti inn í Grundahverfi og svo
áfram í átt að Arnarholti, beygt er framhjá
aðalbyggingunum og þá blasir vinnustofan við
upp á hæð. Það er skynsamlegt að hafa
samband við Tedda áður en lagt er af stað og þá
er von á góðum viðtökum og jafnvel kaffisopa. |