F
r é t t i r
Listamaðurinn Teddi heldur sína 10. einkasýningu í Perlunni 18. ágúst til 5. september næstkomandi. Hann sýnir þar verk sem hann hefur unnið að síðastliðna mánuði, einkum í krossvið, tekk og mahogny en einnig kopar. Teddi hefur valið tré sem sinn efnivið, lífsins tré úr öllum áttum sem hafa sögu, en einnig ólíka áferð, lit og lögun, allt frá rekaviði sem fáir sjá notagildi í að úrvals harðviði. Viðurinn kemur úr öllum heimshornum og flytur okkur skilaboð þaðan.
Sýningin er opin alla daga á opnunartíma Perlunnar frá kl. 10.00 - 22.00 og er aðgangur ókeypis. |
|
Bergrún Íris Sævarsdóttir samdi ritgerð
í íslenskri samtímasögu um listamanninn Tedda og veitti hún
okkur góðfúslega leyfi til að birta hana hér á vefsíðunni.
:· Sjá ritgerð
:· Myndir
frá sýningunni í Perlunni sumarið 2006.
:· Teddi
flytur í nýja vinnustofu á Kjalarnesi.
Skoðið verkin
sem Teddi hefur verið að vinna á Arnarholtinu.
:· Viðtal
við Tedda í fréttablaðinu Grapevine. |