|
|
Listamenn hafa á tuttugustu öldinni
oftar en ekki starfað eftir forskrift um vinnubrögð.
TEDDI er frjáls listamaður sem lætur ekki
segja sér fyrir verkum. Listaverk hans fæðast
innan frá úr hans eigin hugarheimi, frumleg,
sérkennileg. Það er skynsamlegt að kynna
sér verk listamanna og þora að leggja á
þau sjálfstætt mat, velja og hafna með
opnum huga og fara ekki að forskrift í þeim
efnum. Listamenn verða að finna sína eigin
leið í skóla lífsins. Hefðbundið
listnám TEDDA var stutt, hann sótti námskeið
í Finnlandi 1993, en sem ungur maður hafði
hann unnið við grafík í Lithóprent
áður en hann hóf markvisst að vinna
með tré og önnur efni.
TEDDI er eldhugi,
fullur lífsþorsta og sköpunargleði.
Hann sigldi höfin sjö og hafði viðkomu í
flestum heimshornum. Hann reyndi fyrir sér með
mörg listform en nam staðar við sjálft
lífstréð, Ask Yggdrasils, sem breiðir
greinar sínar um heim allan. Eftir það varð
tréð sá efniviður sem hann hefur unnið
með. Í þessu tákni lífsins
fann hann sinn stað og sína stund í tilverunni.
|